Álfur út úr hól c',)

29.09.2008 10:46:48 / mariaosp

Fæðingarsagan...

 

Ekki lét hún bíða eftir sér skvísan, stundvís eins og mamma sín :) Hún kom á settum degi, ekki með neinum látum gerði þetta bara hægt og rólega en örugglega og vel :)
Það var hreyft við belgnum á miðvikudeginum 10 sept. ég hafði nú litla trú á þessu poti til litlu enda hafði það ekki mikið að segja á síðustu meðgöngu þó hreyft væri við belgnum 4 sinnum. En burt séð frá því gerðist heldur ekkert allan daginn en svo um þrjú um nóttina komi þessið skemmtilegu daufu samdrættir. Enn hafði ég litla trú á þeim enda duttu þeir niður um fimm leytið þá nóttina og ég sofnaði aftur eftir 2ja tíma svefnleysi hvort sem það var spenningur sem hélt mér vakandi eða ekki veit ég ekki alveg því verkirnir voru varla nema seiðingur sem kom og fór á ca 10 mín fresti. Jæja fimmtudagurinn rann upp og ekki fann ég fyrir miklu reyndar engu, smá vonbrygði en samt líka hálf fegin þar sem ég svaf lítið um nóttina. Fór með Birni Smára í leikskóannn í strætó og brunaði svo á gulu limmunni í skólann. Þegar ég settist niður í tíma þá byrjaði seyðingurinn aftur og hann var alveg reglulegur á ca 7-12 mín fresti. Allur skóladagurinn var þannig seyðingur og samdrættir en ekkert meira.

Ég sótti Birni aftur í leikskólann um 5 leytið og voru verkirnir aðeins farnir að láta finna fyrir sér en ekkert óbærilega gat alveg gengið. Ákvað að labba í bónus bara fyrst ég var á ferðinni, við mæðgin fórum aðeins fyrr út  úr strætó og skunduðum í bónusinn. Ég verslaði inn fyrir helgina mat og nammi ;) á leiðinni heim þegar ég var með kútinn í kerrunni og var með 2 fulla innkaupapoka fóru verkirnir að herðast og ég fór að finna ágætlega fyrir þeim (að mér fannst á þeim tíma). Jæja ég komst þó heim dröslaðist upp tröppurnar svitnaði eins og svín og hálf svimaði þegar þessu var lokið. Þurfti nú að pissa sem er ekki frásögufærandi nema það að slímtappinn lét sig gossa í þeirri ferð og þá fóru verkirnir að herðast vel. Ég hringdi í Óskar og sagði honum að koma heim því ég gat ekki lengur sinnt Birni hann fann nú alveg fyrir því og grenjaði í buxurnar hjá mér þegar ég stóð við vegginn og reyndi að anda verkinn í burtu. Óskar var ekki lengi enda vinnur hann stutt frá, hann hringdi í Svandísi systir og hún kom á harðaspani og sótti Birni.

Ég er ekki frá því að drengurinn hafi skynjað að e-ð væri í gangi því hann var svo óöruggur greyið og half kjökrandi þegar Svandís kom, en það var nú samt ekki vandamálið að fara með henni.

Skondið að segja frá því að þar sem ég var alveg viss um að belgjar hreyfingin hefði ekkert að segja var ég alveg viss um að ganga með fram yfir helgi og ætlaði þar af leiðandi að nýta helgina til að þvo þvott og annað sem þurfti fyrir ófæddu dúlluna. Svandís fékk því allan þvottinn í hausinn sem þurfti fyrir fyrsta daginn.

En við brunuðum niður eftir og ætluðum nú að vera þarna þar til allt væri yfirstaðið, hmmm… fimm í útvíkkun… arg… ekki var það nú mikið miðað við að ég var komin með þrjá þegar hreyft var við belgnum morguninn áður. Klukkan var sex og við áttum að fara út í smá göngu, við ákváðum að setjast í bílinn og horfa á mynd, horfðum svo á House og létum sjá okkur aftur á fæðingadeildina um klukkan ellefu. Aftur var athugað á útvíkkun og enn var hún bara fimm. Ég var orðin mjög þreytt enda búin að vera með verki allan daginn svo ég vildi fara heim að sofa. Við brunuðum heim eða rétt drolluðum þar sem ekki er hægt að keyra bílinn mikið hraðar en 50-60. Jæja Óskar var svaka spenntur og ætlaði sér bara að horfa á tv enda bjóst hann ekki við að vera lengi heima. Ég fór upp í rúm og reyndi að ná mér í smá kríur á milli verkjanna. Klukkan half sex um morguninn voru verkirnir orðnir ansi harðir og ég ekki búin að sofa mikið, Óskar auðvitað steinrotaðist fyrir framan skjáinn um leið og hann fór að slappa af ;)

Við forum niðureftir og þá var ég komin með sjö í útvíkkun ekki mikið fannst mér tveir fyrir alla þessa verki alla nóttina en jæja ekki hægt að fárast yfir því, við vorum allavega ekki send heim. Fengum stofu og ég fór í sturtu, Óskar lagði sig í lazyboynum á meðan, sturtan gerði bara gott og heita vatnið hjálpaði helling.

Nú tók við bið og endalaus fannst mér, enn voru alltaf um 6-10 mín á milli þó mér fyndist verkirnir all harðir þá var frekar langt á milli. Ljósmóðirin ráðlagði okkur að fara í smá göngutúr og við örkuðum stigann. Þegar ég var búin að fara eina ferð niður og upp í lyftunni urðu verkirnir svakalegir. Ljósan mín reyndi að heilsa mér en ég kom ekki upp orði meðan hríðin varði svo hún bað okkur að koma inn í herbergi aftur og setti mig í monitor til að sjá hríðarnar og já þetta voru alveg “hörku” samdrættir að þeirra sögn. Um klukkan half 10 var belgurinn sprengdur því ekki fannst þeim þetta ganga nógu hratt. Og je dúdda það fór sko allt úr 3 gír í þann 5ta þegar vatnið fór. Enda var svísan fædd um klukkutíma seinna, hún kom í heiminn á hvolfi bókstaflega þar sem ég átti hana standandi, sem var mjög sérstakt en gaman.

 

Daman fékk strax nafnið Svandís Katla.

Svandísar nafnið kemur frá Svandísi ömmu (mömmu Óskars)

Kötlu nafnið fékk hún því okkur finnst það fallegt.




» 3 hafa sagt sína skoðun

04.09.2008 19:57:04 / mariaosp

Heyr heyr !!!!


Fengum íbúð í Hraunbænum 8) ekki alveg hverfið sem við vorum að leita að en hey fín íbúð á góðu verði. Svo það er hægt að fara að koma í heimsókn aftur, glatað að geta ekki tekið á móti neinum gestum á kvöldin þegar stúfurinn er sofnaður, en nú verður breyting þar á :)

Ekkert að gerast hjá bumbubínunni, enda ágætt þar sem verkfallið stendur sem hæst núna þessa dagana. Ég ætla að halda í mér fram yfir verkfallið sem er í næstu viku svo að önnur helgi væri vel þegin til fæðingar. "Heyriru það unga dama ?!???" :haha: Æj þetta kemur í ljós, ég er svo ekki að stressa mig á þessu og ætli hún komi ekki loks þegar minnst varir og enginn á von á henni. En samt ekki í nótt þar sem við flytjum í fyrramálið og ég verð að geta sagt til við flutningana. Maður verður að hafa hlutverk og ef ekki er hægt að nota mann í að bera hluti þá segi ég bara til og ef til vill elda ofan í liðið sem verður þarna að hjálpa til ;)

Lítið annað að frétta, skólinn byrjaður á fullu og ég tek mér strætó í skólann þar sem bílinn okkar er bilaður og ég fékk auðvitað skólakort í strætó svo nú fer ég allra minna ferða í strætó. ætli ég fari ekki bara á endanum á fæðingardeildina í strætó, þarf þá allavega ekki að borga í stöðumælinn og fá sekt ef ég er e-ð lengi að þessu. Annars var ég búin að ákveða það að þetta yfir 100 krónu barn þar sem ég ætla bara að setja 100 krónur í stöðumælinn og svo út eftir einn og hálfan tíma. 8):haha: Hey!!! maður má láta sér dreyma hehehe

Látum þetta gott heita af síðasta kvöldinu í breiða holtinu... ummm ljúf tilfinning að vera að fara að komast í sitt eigið, geta eldað fyrir alla fjölskylduna sína og hvað þá án þess að þurfa endilega að þrífa pottana 5 mínútum eftir matinn !!!! :$


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.08.2008 21:02:57 / mariaosp

Framgangur... ganga fram af...

Allt gengur sinn vanagans hér á hóli, ég að verða geðveik á foreldrum mínum og bumban farin að þreyta mig all verulega. En það þýðir ekkert að vera með e-ð svartsýnisnöldur hérna enginn nennir að lesa það ... ekki satt hehe...:lol:

Litla skottan er vel skorðuð en hreyfir þó höfuðið annað slagið til í grindinni við ekki svo góðar undirtektir mömmunnar sem er avleg helaum eftir brölt og byltur hjá skottu. Hún er farin að stækka all verulega og er orðin hvorki meira né minna en 12 merkur hefur semsagt stækkað jafnmikið á síðustu 4 vikum og alla fyrstu 7 mánuðina ( um 6 merkur). Svo núna eru ljósan og læknirinn bara sátt við þá stuttu og eru hætt að hafa áhyggjur af stærðinni. Blóðþrýstingurinn heldur sér á mottunni enn sem komið er allavega eftir að lyfin voru aukin og ég held mér í algerri hvíld, sef nánast allan daginn. Ætla mér ekki að vera lögð inn í þetta skiptið nema þennan hálftíma sem ég er búin að gefa mér í fæðinguna sjálfa 8)

Ég er alltaf að æfa mig í að skoða bleik föt og stelpudóterí, fékk tvo fulla poka frá vinkonu minni af stelpufötum. Ég er ekki enn farin að kíkja í pokana en jú tók upp dökkbleika peysu sem var efst í öðrum pokanum og held bara að skottan fari í þeirri peysu heim af spítalanum. Á svo eftir að skoða það sem eftir vantar í fatasamsetningu heimferðarinnar. Það verður hausverkur... kemur í ljós.

Stúfurinn minn er alltaf að stækka og það koma ný orð á hverjum degi, nánast undantekningarlaust. Gaman að því þegar ég spyr hann hvað sé í bumbunni og bendi á magann á mér. Hann lýtur á mig, bendir og segjir "bubba" (bumba) rífur svo upp bolinn og togar buxurnar niður potar í magann og segir "sidti" (systir) lokar svo aftur fyrir og segir "búi" (búið)... Bara endalasut gaman að sjá hann í þessu. Veit ekki hvort hann er að fatta þetta eða hvort hann er bara búinn að læra hvað á að segja... Verður forvitnilegt að upplifa hvernig þetta verður allt saman. Svo maður minnist ekki á að eiga 2 börn. Ég er ekki enn komin niður úr skýjunum eftir að ég átti frumburðinn svo ég veit ekki hversu ofar er hægt að komast þegar maður eignast annað. Alveg í áttund eða hærra....

En jæja grindin er farin að kvarta undan setu, svo það er best að taka sér parkódín og vatn í hönd og leggjast og horfa á imbann þar til maður fer að dotta, stundum endist ég til tíu samt oftast ekki mikið lengur en níu ;)

Kveðja úr breiða holtinu...


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.08.2008 14:12:27 / mariaosp

Íbúðarleit og búðarrölt

Eitt blogg á mánuði.... það er ágætt hehe...
Ef þið ágæta fólk vitið um ódýra íbúð til leigu þá endilega megið þið láta mig vita er alveg búin að fá nóg af því að búa í foreldrahúsum !!!! Maður á ekki að gera sjálfum sér þetta !!!! Vara alla við hérmeð...:evil: Er opin fyrir flest öllum hverfum í Reykjavík þó helst 108 og 105 þar er gott að búa stutt frá öllu.

En við snúður erum komin með góðu rútínuna aftur eftir gott vöku-rugl í sumarfríinu. Hann var ekki að sofna fyrr en um hálf 10 eða jafnvel seinna og svaf svo á móti fram undir miðjan dag.... frekar næs sko. En það þarf víst að hafa reglu þegar leikskólinn er byrjaður aftur og þreytta mamman hefur ekki úthald í að elta orkuboltann til tæplega tíu á kvöldin. Núna er bara sofið rétt 45 mín á daginn og svo er minn sofnaður um hálf 8 á kvöldin og sefur alveg til tæplega 8, þá er brölt á fætur og gjarnan kúrt á mömmukodda í smástund.

Annars er fínt að frétta af mér fyrir utan vökunætur sem koma oftar en mig langar :$ Í nótt vakti ég frá þrjú til hálf sex. Var svo við það að sofna þegar Birnir fékk hóstakast og þá náttúrulega var ekki mikið eftir af svefninum, dormaði til að verða 8 og fór svo með prinsinn í morgunmat í leikskólann. Ekki tókst mér að sofna aftur svo ég lagðist í klukkutíma bað, þurfti að hita vatnið 2svar var svo lengi... umm bara næs.

Ég fór svo í Smáralindina í morgun og ætlaði mér að kaupa stígvél  fyrir drenginn því hann er að vaxa upp úr sínum, en nei í flest öllum búðum koma þau ekki fyrr en um miðjan september !!! Held að búðareigendurnir hafi fengið of mikið að sól í sumar og gleymt að panta stígvél, það á að rigna um helgina....

Tók svo "bleikt-rölt" um Smáralindina til að athuga hvað ég fyndi... sá ekki mikið nema nokkra boli með blómamynstri í Hagkaup og snuð... rofl.... Kom svo heim með gallabuxur á prinsinn og 3 sokkabuxur.... ekki það að hann vanti það neitt... bara GET EKKI KEYPT BLEIKT !!!!!!

Jæja segi þessu bulli lokið í bili.


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.07.2008 16:07:55 / mariaosp

Smá fréttir....

Hmm.... já er svakalega andlaus e-ð þessa dagana. Búin að vera í 3 vikur í sumarfríi með snúðnum mínum og vika 4 að byrja. Sumarið hefur alveg fokið fram hjá mér þrátt fyrir að ég hafi gert alveg helling. Byrjaði á því að fara til Austurríkis svo austur á Egilsstaði á ættarmót og ekki má gleyma hitanum og sólinni hérna í Reykjavíkinni náði nokkuð af henni á Austurvelli með ís í annari hönd og reyna að hafa hemil á hlaupagarpnum mínum með hinni. Ættarmót #2 er í uppsiglingnu og ætlum við að vera í hjólhýsi, nokkuð nett. Hlakka bara jafnvel til, sérstaklega þar sem ég hef þá Óskar minn við hliðina á mér alla helgina. Alveg glatað að vera svona e-ð í sundur, búa á sitthvorum staðnum og reyna að halda í taumana. En allavega þetta voru smá fréttir héðan úr sveitinni ef svo má kalla, breiðholtið er hálfger sveit svo langt frá ÖLLU og öllum. Strætó hefur verið minn besti vinur það sem af er... enda ekki hverjum sem er fært að versla sér bensín ef maður á að geta lifað líka. *Hnuss*

ps. Held ég hafi stafina bleika þar sem ég þarf góðan aðlögunartíma með bleikuna mína, það er nefnilega stelpa á leiðinni. Ég sem er alveg strákamamma fram í fingurgóma og sé ekkert nema strákadót og strákaföt, finnst meira að segja erfitt að skoða stelpuföt þau eru bara ekkert flott, bara allt bleikt og með blúndum eða glimmeri..... oj oj oj Ég vil rauð föt og græn og ekkert blúndu og glimmerpunt !!!


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.05.2008 12:50:11 / mariaosp

BÚIN Í PRÓFUNUM !!!!

Já það hlaut að koma að því að prófunum lyki og það er akkurat í dag núna fyrir tæpum klukkutíma kláraði ég prófið sem er búið að valda mér miklu stressi og hugarangri.
Þvílíkur léttir maður lifandi, þá tekur við sumarfrí alveg fram á haust og prinsinn minn fær alla mína athyggli í sumar og ekkert múður !!
Læt heyra í mér seinna þar sem Birni Smára sló niður í gær og er hann því aftur orðinn veikur... úff... hélt hann væri búinn með kvótann fram að jólum en nei !!! aldrei of varlega farið greinilega... en jæja minnar athyggli er óskað annarsstaðar en hérna við tölvuskjáinn.
Kveðja út mýrinni... adios

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.05.2008 19:43:23 / mariaosp

Skóli-róli....

Eitt próf eftir og lesturinn alveg í hámarki, finnst samt ekki mikið fara innfyrir börkinn eða valgegndræpur og velur sjálfur !!!! En ætla mér að taka næstu 2 daga með trompi hvað varðar lesturinn svo verður slett úr klaufunum á föstudaginn, gamli bekkurinn minn er að fara að útrksrifast og óska ég þeim öllum innilega til hamingju með áfangann og væri ég sko meira en til í að vera í þeirra sporum núna. En þar sem ég tók mér pásu þegar gullið mitt fæddist þá sé ég sko ekki eftir því að hafa seinkað mér um ár, vildi ekki fyrir nokkurn mun skipta. Hmmmmm stutt blogg núna, hef lítið að segja.

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.05.2008 22:14:38 / mariaosp

Létt á fæti

Já það er þvílíku þungu fargi af mér létt að vera búin að skila af mér ritgerðinni *fjúkk* komst inn í skólann fyrir stökustu heppni þar sem ég var með vitlaust lykilorð og það var ein kona að fara út og var svo elskuleg að opna fyrir mér. Stundum hittir maður yndislegt fólk á ferðinni, var ekki svo heppin í morgun þegar ég kom úr mæðraskoðuninni !!!

 

Ég var að keyra út af bílastæðinu og horfði á biðskyldumerkið við hliðina á mér hugsaði með mér á ég að stoppa eða fara aðeins lengra.. ákvað að fara aðeins lengra.. og viti menn !! haldiðið ekki bara að gamall hjálmlaus hjólreiðamaður hafi bara næstum hjólað inn í hliðina á bílnum mínum sem ég er btw búin að selja svo ég á hann í raun ekki lengur... en... kallinn alveg fokvondur og stoppaði hinum megin við bílinn starði inn í bílinn hjá mér og benti á augun á sér... halló hvað með að hann hafi nú bara hægt aðeins á sér ... hehehe.... ég bara brosti til hans kinkaði kolli og vinkaði um leið og ég gaf hressilega í til að verða á undan strætó í röðinni á ljósunum tíhí... og ég sem á að vera að passa blóðþrýstinginn. Var semsagt skipað að liggja heima og kúra veika snúðinn minn, ætli ég fari ekki bara eftir þeim leiðbeiningum og geymi próflesturinn fram á mánudag eða jafnvel þriðjudag þegar leikskólinn opnar aftur.

 

En já ég þyngist ekkert á þessari meðgöngu heldur léttist bara.... ljósan ætlar ekki að hafa áhyggjur fyrr en á 30 viku eða ef ég léttist um meira en 5 kíló það er samt ekki svo langt í þessi 5 kíló í létti... kúlan er líka undir meðallagi en ég er með svo stóra og góða grind að krílið hefur nóg pláss til hliðanna. hehehe...*hóst* OK ég skal fara að reyna að borða meira.. er bara svo svakalega lystalítil og ef ég borða stóra máltíð þá verður mér óglatt og fæ svakalega illt í magann.

 

En jæja ætla að fara að setja kellingamynd í tækið, stúfurinn sefur og allt orðið hljótt í húsinu, fyrir utan partýið á efstu hæðinni.... ætti kannski bara að skella mér þangað og taka hlustunartækið með svo ég heyri ef stubbur vaknar... hehehe... sjáum til þegar myndn er búin, ef ég þá sofna bara ekki yfir henni sem er ekki svo ólíklegt.



» 0 hafa sagt sína skoðun

08.05.2008 19:22:37 / mariaosp

Hafði það af !!!

Jæja þá ætti maður að vera fær í flestan sjó, hafði það af að spyrja ma og pa hvort við Birnir Smári mættum vera hjá þeim í sumar og þau tóku bara furðulega vel í þetta allt saman. Pabba hlakkaði bara til að vakna með Birni klukkan 7 á morgnana um helgar í sumar...
En rigerðar druslan hefur setið á hakanum í dag þar sem stúfurinn tók upp á því í nótt að vakna upp með 39 stiga hita og hitinn hefur bara hækkað það sem af er degi ef e-ð er... Hann er bara í móki barnið og alveg svakalegt að sjá hann, liggur eins og lamaður á öxlinni á mér milli þess sem hann sefur. Vona að þetta rjátlist af honum yfir helgina því ég verð að geta lært í næstu viku fyrir aðferðarfræði próf sem er á föstudaginn *æl*
Svo er mæðraskoðunin í fyrramálið og vonandi kemur hún vel út, nenni ekki að fara að vera með e-rjar sér þarfir strax á 22. viku *svimi*
Segjum þetta nóg í bili úr mýrinni... over and out


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.05.2008 11:35:35 / mariaosp

Ég skal, ég vil, ég get !!!

Er að vinna núna í verkefninu... ég veit ekki búin með það og fékk frest fram á föstudag... ætla að klára þetta á þessum 3 dögum sem eru fram að þeim tíma....
En allavega þá hætti ég við að hætta að vinna, ætla allavega að láta á það reyna fram að sumarfríi í leikskólanum hjá Birni Smára, verð þá að vinna út júní ef heilsan leyfir. Læknirinn sagði að ég mætti klára skólann og svo ætlar hann að sjá til, krossum puttana og vonum það besta.
Næsta mæðraskoðun er á föstudaginn og ég vona að sú skoðun komi betur út en sú síðasta, þá var blóðþrýstingurinn himin hár og mér skipað að fara heim og setja lappirnar upp í loft... en þið sem þekkið mig á ég mjöög erfitt með það. En er allavega ekki búin að gera mikið samt aðalega þvo þvott og þrífa hérna heima. Það er ótrúlega skrítið þar sem ég hef ekki unnið neitt að ráði frá því í desember 2006 þegar ég fékk meðgöngueitrun þegar ég gekk með Birni Smára þá er ég orðin e-ð óvön því að vinna en finn samt að þörfin fyrir að komast e-ð út úr húsi núna hefur sjaldan veirið meiri. Nenni ekki að leggjast í e-ð volæði hérna af því að þrýstingurinn er e-ð ískyggilega hár....
En ég vona að ég fái grænt ljós á að vinna fram í júlí, því þá er ég til í að vera heima og fara í gögnutúra með Eygló og nýfæddu borða ís og sitja á kaffihúsum.
En jæja farin að fá mér í svanginn. heyrumst


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.05.2008 21:33:34 / mariaosp

Fyrsta prófið búið....

Já þá er maður búinn að ljúka við fyrsta próf þessa árs og eitthvað segir mér að þau eigi eftir að verða fleiri. Mér tókst samt að gleyma að skrá mig á þriðja árið í skólanum, en með herkjum þá fékk ég það í gegn að skrá mig í fögin öll nema eitt, ætla að tala við kennarann í faginu og athuga hvort hún geti ekki skráð mig inn, kemur í ljós væri samt fúlkt ef skólinn stoppaði allt á einu fagi.. hef ekki trú á því þeir þarna í stjórninni hljóta að vilja útskrifa fleiri leikskólakennara svona allavega fyrir þjóðfélagið.
Hafð það ekki í mér að spyrja ma og pa hvort ég mætti vera þarna hjá þeim í sumar með strákinn... ætla að bíða betri tíma eða allavega þar til ég er tilbúin að spyrja þau, verð samt að drífa í því þar sem við eigum að losa íbúðina okkar eftir 4 vikur !!! Ekki langur tími það .... en þetta reddast.
En eitt enn okkur vantar geymslu stað fyrir allt innbúið, kannski maður ætti bara að selja þetta og fá smá aura fyrir.... spurning... allavega er allt opið ennþá... ekkert ákveðið... þoli samt ekki að hafa allt svona opið, vil hafa hlutina neglda niður og geta gengið að þeim vísum, en maður verður e-r staðar að byrja upp á nýtt...
Jæja látum þetta duga úr mýrinni í kvöld, ætla að vera extradugleg á morgun að klára eitt verkefni sem ég á að skila á miðvikudaginn, þá er betra að sofa vel fyrir þau átök.

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.05.2008 15:55:17 / mariaosp

Andlaus og alls laus...

Já ég held ég skirfi hérna inn svona meira fyrir mig en aðra enda held ég að ekki margir séu að lesa þetta blogg ennþá.
En ég er frekar andlaus e-ð þessa dagana á að vera að lesa fyrir próf og jú jú það gengur alveg tók mér samt smá pásu til að lífga upp á þessa síðu aðeins og langaði að breyta henni. Strákurinn er hjá mömmu og pabba svo ég fái lærifrið í dag, því maður gerir víst ekki mikið með hann hangandi í lærinu á mér allan daginn.
Íbúðin seldist í síðustu viku og ekki hef ég hugmynd hvað tekur við, ætli ég fari ekki í gamla herbergið mitt hjá ma og pa þangað til málin skýrast eða allavega þar til svar kemur frá stúdentagörðunum. Það er víst ódýrasti kosturinn fyrir utan auðvitað hótel mömmu meðan maður er að safna sér smá pening til að geta þá kannski keypt þegar skólinn er búinn og maður fær e-rjar tekjur.
Birnir Smári stækkar og stækkar og manni finnst tíminn bæði í senn standa í stað og fljúga áfram. Hann tekur framförum á hverjum degi, orðin koma nánast eitt á dag og hann er farinn að geta ótrúlegustu hluti og skilur ótrúlega margt þetta lita skinn.
Eins og flestir vita núna þá er von á erfingja númer 2 og er bumban alveg að þenjast út þessa dagana enda komin alveg 21 vika á því jafn mikið eftir og það sem er búið.
En jæja bókin les sig ekki sjálf og best að hætta þessu rausi hérna. En ég er allavega mætt á svæðið og við skulum vona að andinn komi yfir mig annað slagði svo ég geti sett inn fréttir af og til.

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.03.2008 16:17:37 / mariaosp

Áfram heldur sem frá horfði ;)

Eigum við að lífga þetta blogg við... eða gera tilraun allavega ???

Einn
Tveir
Þrír
Fjórir
Fimm
Sex
Sjö
.....
Fimmtán

og svo blása

Einn
Tveir
Þrír
Fjórir
Fimm

Og hnoða aftur.....

Jæja þetta er allt í áttina allavega.... Komin færsla, frekar innihaldslaus enda á ég að vera að vinna í ritgerð núna sem reyndar gengur framar vonum... allt að smella saman. Langaði bara svona að reyna að koma því frá mér að ég er að komast í sumarfílinginn... Langar svakalega að fara að taka rölt niður á laugarveg eða hverfisgötu og skoða í búðir, fara á kaffihús drekka te... já eða kakó... eða....
 
Langar þvílíkt mikið út fyrir landssteinana líka, til Prag eða Amsterdam.. vera á hóteli láta þrífa upp eftir mig óhreinidin, fara og fá mér mat sem búið er að elda fyrir mig og helst láta þvo þvottinn minn líka ;) ...draumar...draumar... alltaf má láta sér dreyma... en burt frá þeim þá ætla ég að halda áfram að vinna í ritgerðinni áður en ég sæki strumpinn minn í leikskólann :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.07.2007 12:49:08 / mariaosp

Óskalistinn eða er það Óskarslistinn ;o)

Úhhhh jee ég er að fíla mig eins og ég sé í útlöndum, bilað gott veður og ég í fríi alla daga og bara að dúlla mér með prinsinn og vagninn náttlega, fer út um allt í strætó þar sem ég hef víst misst forræðið yfir bílnum... en það lagast á næstunni þegar ég fæ minn eigin bíl... þá er bara aðalhausverkurinn hvernig bíl ég á að fá mér. Var að spá í að taka með mér vagn, kerru og stóra ferðatösku þegar ég fer að prufukeyra bíla, ef þetta kemst ekki allt saman í skottið í einu þá dugar bíllinn ekki !!! Það er ekker smá fyrirtæki að fara með Birni Smára bara rétt í heimsókn, það þarf að hafa með minnst 3 auka sett af fötum samfellur bleyjur blautklúta auka snuð teppið hans náttlega og ef við ætlum að vera lengi þá þarf vaganinn að fara með því hann vakir ekki nema ca. 2 tíma í einu og þá vill kappinn bara vagninn sinn. Mig langar líka í urban jungle kerru fyrir hann og líka nýjan bílstól sem er fyrir 0-25 kíló... hmmm Óskar minn má því fara að auka við sig vinnuna enn meira svo ég geti fengið það sem ég vil ;) og já.... mig vantar helling af fötum :haha:

Víð erum að fara til spánar eftir 32 daga og ÉG GET EKKI BEÐIÐ !!!! En bara fyrir þá ferð þá vantar mig  pils, kvartbuxur, boli, bikini, sandala.... og auðvitað margt annað jú mig langar í ný gleraugu er komin með nett leið á þeim sem ég er með, búin að vera með þau á nefinu síðan 1999 takið eftir fékk þau á síðustu ÖLD !!! og það sem verra er að ég er hætt að sjá með þeim sé illa númeraplöturnar á bílunum sem eru fyrir framan 8| held það gæti verið merki um að skipta um gleraugu :$

Þar sem við ætlum að vera í íbúiðinni okkar eitthvað áfram þá lanagr mig að endurnýja ýmislegt hérna innan dyra, til að mynda nýtt parket, mála veggina, nýja sturtu, nýja eldhúsinnréttingu, eða bara nýtt eldhús !! nýtt hjónarúm, nýja sófa í stofuna, flatskjá, dvd spilara....

Held bara að þetta sé komið að mestu 8)

Læt hénra fylgja mynd af kraftaverkinu mínu ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.06.2007 12:12:23 / mariaosp

Spánn here I come :):)

Við erum á leiðinni til spánar litla fjölskyldan :) Vorum að ganga frá því í gær og ég hlakka svooo til að fara út :D:D:D :haha::haha: Tengda mamma verður sextug og allir ætla með börn, tengdabörn og barnabörn;) Hlakka svo til að fara með litla strumpinn minn sem er svo skemmtilegur, brosið við öllu, hjalar og baðar út öllum öngun þegar ég birtist, mömmustrákur eða hvað, hann er líka ágætur í pabbafangi en mamma má sko ekki fara langt og það breytist andrúmsloftið þegar mamma fer úr húsi og allt verður öðruvísi en vant er hehe... dýrka þetta litla skott enda er hann dekraður og knúsaður á hverjum degi ;)

Ömurlega veðrið úti núna mar' ég hélt að það hefði átt að vera gott veður þar sem vetur og sumar frusu saman á það þá ekki við um ALLA dagana í sumar, ekki bara EINN og EINN !!!!!

Jæja langaði bara að deila þessu með ykkur farin á kaffihús... Ooohhh ég elska að vera í fæðingarorlofi og gera bara hvað sem er hvenar sem er ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Klukkan
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 514 dögum
Ætti litla gullið að koma í heiminn